Kaffi - vefverslun

Kenía Gatina

Kenía Gatina

Kenía 2011

Nafn: Gatina
Bóndi: 527 bændur
Hérað: Nyeri
Svæði: Konyu
Plöntutegund: SL28, SL34
Hæð yfir sjávarmáli: 1818 metrar
Vinnsluaðferð: Þvegið og sólþurrkað
Flokkun: AA
Pökkun: Loftþéttir pokar

Gatina frá Keníu er gullmoli. Bjartir tónar leika við ávöxtinn og sólberin. Víntónarnir sem einkenna góða Keníu eru á sínum stað. Kaffið hefur mikla fyllingu og langt eftirbragð.

Gatina er gott eitt og sér, þegar tími er til að njóta bragðsins.

Hentar í allar tegundir uppáhellingar, en nýtur sín best í pressukönnu eða gamaldags uppáhellingu.

Kaffibaunir í Keníu eru flokkaðar með bókstöfum. Kenía AA er tákn fyrir stærstu baunirnar sem ræktaðar eru þar og er bragðið oftast margslungið og flókið, ávaxtaríkt og bjart. Gatina er nafn á vinnslustöð, þar sem 527 bændur vinna saman. Flestir eiga lítið land og eru með ca. 150 kaffitré, en rækta jafnframt önnur tré sem þeir nota til að skýla kaffitrjánum fyrir brennheitri sólinni.

Í vinnslustöðinni eru tvær flokkunarvélar og 4 tankar, til að endurvinna vatnið, sem kemur frá vinnslunni. Vatnið sem notað er kemur frá ánni Kagure.

Bændurnir rækta einnig te, korn, banana og grænmeti.

 

1,590 kr.
1,590 kr.
3,180 kr.
3,180 kr.
6,360 kr.
6,360 kr.

 

 

Magn: Setja í körfu Loka

Afgreiðslutímar

Fróðleikur

Kjörlendiskaffi

Kjörlendiskaffi er nafn yfir kaffi sem oftast er ræktað í litlu magni, þar sem bóndinn velur bestu ræktunarskilyrðin á landi sín

Lesa mola  |  Sjá fleiri mola

Við mælum með

Umhverfismál

Við látum verkin tala.
Sjá nánar