Kaffi - vefverslun

Cup of excellence 2011 Níkaragúa

Cup of excellence 2011 Níkaragúa

Nafn: La Picona

Bóndi: Olga Marina Gonzáles Cuadra

Stærð á búgarði: 8,39, þ.a. 4,19 undir kaffiræktun.
Hérað: Dipilto

Svæði: Nueva Segovia
Plöntutegund: Maracatu
Vinnsluaðferð: Þvegið og sólþurrkað

Kíló í kepninni: 1.080
Röð: 17. sæti með 85,67 stig af 100

Bragðið af La Picona er yndislega tært með sætum, ljúfum rjómasúkkulaðitónum. Greina má rúsínur og sítrus í bragði.

Eftirbragðið er langt og rjómakennt. Hentar einstaklega vel í uppáhellingu og pressukönnu.

Nueva Segovia er hérað upp undir landamærum Hondúras. Undanfarin ár hefur mikið af góðu kaffi komið frá þessu héraði og þá sérstaklega fyrir tilstuðlan Cup of Excellence.  La Picona er nafn á fjalli sem er á landamærunum og þar ræktar Olga landið sitt ásamt tveimur dætrum sínum og vinnufólki.

Búgarðurinn var í eyði þegar hún keypti hann fyrir 10 árum og hefur hún verið að smá bæta við kaffiræktunarsvæðið og stækka það.

Olga hefur trú á COE keppninni vegna þess að hún beinir athygli bænda að framtíðinni.

 Kaffitár fór fyrir hópi kaupenda frá Evrópu og bauð í kaffið á uppboði. Þetta kaffi er einnig  hægt að fá hjá Are Kafferosteri - Svíþjóð, Caffé Cataldi - Frakklandi , Sviezia Kava – Litháen, Da Matteo Torrefazione- Svíþjóð og Kaffee Alchemie –Austurríki.

2,240 kr.

 

 

Magn: Setja í körfu Loka

Afgreiðslutímar

Fróðleikur

Oolong te

Oolong te er hálfgerjað te. Þess er fyrst og fremst neytt í Kína og Taiwan en er að riðja sér rúms í Evrópu.

Lesa mola  |  Sjá fleiri mola

Við mælum með

Umhverfismál

Við látum verkin tala.
Sjá nánar