Kaffi - vefverslun

Súmatra Lífræn Raja Batak

Súmatra Lífræn Raja Batak

Súmatra Raja Batak, lífrænt

 

Nafn: Raja Batak
Land: Súmatra
Svæði: Toba vatnið í Aceh héraði
Hæð yfir sjávarmáli: 1000-1600 metrar
Plöntuafbrigði: Meirihlutinn er Linie-S í blandi við Ateng
Vinnsluaðferð: Hálfþvegið, handhreinsað og þurrkað á þurrkborðum (Semi washed and handpulped)

 

Súmatra Lingtong Raja Batak er bæði til hjá okkur sem lífrænt ræktað kaffi og eins hefðbundið. Tært kaffi með mikilli fyllingu, örlitlum ávexti og ákveðnu bragði af hlynsírópi. Krydd og dökkt súkkulaði.

Raja Batak þýðir kóngurinn í Batak. Batak er þjóðflokkur á Norður Súmötru, sem hefur sitt eigið tungumál og siði.

Raja Batak er Arabíka kaffi, ræktað vestur af vatninu Toba, í  1000-1600 m. hæð yfir sjávarmáli. Bændur á þessu svæði eiga einungis litla skika lands. Vinnusluaðferðin er þannig að strax að tínslu lokinni tekur bóndinn kaffibaunirnar úr berjunum og breiðir þær út til þerris.  Á nokkurra daga fresti er kaffi safnað saman frá öllum bændum á svæðinu og það unnið og flokkað til útflutnings. Þetta kaffi er ekki þvegið með vatni eins og oftast er gert í Mið- og Suður-Ameríku. Fyrir bragðið verður kaffið fylltara og við greinum sætan jarðarkeiminn. Það sem okkur finnst skemmtilegast við þetta kaffi er hvað það er tært, þannig að allir bragðtónarnir koma í gegn.

1,220 kr.
1,220 kr.
2,315 kr.
2,315 kr.
4,150 kr.
4,150 kr.

 

 

Magn: Setja í körfu Loka

Afgreiðslutímar

Fróðleikur

Kaffitár án krókaleiða.

Kaffimeistarar Kaffitárs ferðast til kaffiræktunarlanda og skoða þar kaffiakra og vinnslumyllur og smakka kaffið með bændum

Lesa mola  |  Sjá fleiri mola

Við mælum með

Umhverfismál

Við látum verkin tala.
Sjá nánar