Grunnurinn að ómótstæðilegum kaffisopa er nýbrennt og ilmandi kaffi. Meðhöndlun kaffisins er jafn mikilvæg og valið á kaffibaununum. Rétt geymsla, mölun og uppáhelling tryggir kaffiunnendum ljúffengan kaffibolla. Kaffið má vera kryddaðra og bragðmeira eftir því sem meðlætið er flóknara og bragðmeira þannig að það styðji vel hvort við annað í dansinum við bragðlaukana. Bragðmikið kaffi með mikilli fyllingu og súkkulaðikeim er t.d. afar gott með sætabrauði og hvað þá súkkulaðitertum.
Þegar boðið er uppá kaffi er rétt að hafa í huga að bolli miðast við 150 ml og í uppáhellingunni fara 50 g í 1 líter af vatni. Þannig gefur 1 kg af kaffi 20 lítra eða 160 bolla. Fyrir minni kaffiboð er gott að gera ráð fyrir 250 g af kaffi sem gera 5 lítra sem eru um 40 bollar. Í kaffiveislum er rétt að gera ráð fyrir 2 bollum á mann.
Hve mikið af kaffi þarf í veisluna miðað við fjölda gesta?
Taflan miðast við að hver fullorðinn drekki tvo bolla.
| 1 kg | 70 manns |
| 2 kg | 140 manns |
| 3 kg | 210 manns |
| 4 kg | 320 manns |
| 5 kg | 400 manns |
| 6 kg | 480 manns |
| 7 kg | 560 manns |
Borinn fram í 180-200 ml bolla og samanstendur af 1/3 kaffi, 1/3 heitri mjólk og 1/3 mjólkurfroðu
Lesa mola | Sjá fleiri molaVið látum verkin tala.
Sjá nánar