Allar tegundir uppáhellinga henta til að gera kaffidrykki heima. Best er að velja bragðmikið kaffi, t.d. þær tegundir Kaffitárs sem merktar eru með 2-3 baunum á miðanum eins og Expressó Krakatá eða Vínarkaffi.
Þú getur líka leikið þér með bragðið og valið mismunandi bragðtegundir af sírópi út í drykkinn - úrval af sírópi fæst á kaffihúsum okkar og hér í vefverslun bæði með og án sykurs.
Eins getur þú valið mismunandi tegundir af mjólk fyrir drykkinn allt eftir því hvað hentar þér. Fyrir þá sem vilja sleppa rjómanum er gott að freyða mjólkina. G-mjólk freyðir best en aðrir valkostir eru t.d. fjörmjólk og sojamjólk. Fyrir þá sem vilja léttari útgáfu er upplagt að freyða létt g-mjólk og nota sykurlaus síróp. Gott að nota mjólkurfreyðikönnu á hellu.
Gangi þér vel.
Sjá úrval af vörum fyrir kaffidrykkjagerð ásamt úrvali af sírópum (einnig sykurlaus).
Þjappan er í laginu einsog pattaralegt stundarglas. Þjappan er úr málmi og er notuð til að fergja kaffið ofan í greipina.
Lesa mola | Sjá fleiri molaVið látum verkin tala.
Sjá nánar