|
Kaffið og vinnustaðurinn Kaffitár bíður upp á ráðgjöf og þjónustu til fyrirtækja sem vilja bjóða starfsmönnum og viðskiptavinum sínum gott kaffi. Ragnheiður brennslumeistari brennir kaffið daglega til að tryggja gæði vörunnar svo að fyrirtækið þitt fái ferskt og gott kaffi. Kaffitár hefur einnig til sölu te, hreinsiefni, kaffifiltera og fleiri kaffitengdar vörur.
Hægt er að fá heimsókn frá okkur til þess að stilla sjálfvirku kaffivélina þannig að eiginleikar kaffisins njóti sín og fá leiðbeiningar með hvaða kaffi hentar best í vélina þína.
Sala og dreifing Sala og dreifing á vörum okkar fer fram með þrennu móti: með smásölu í kaffihúsum okkar, heildsölu til matvöruverslana ásamt sölu til fyrirtækja, veitingastaða, bakaría og fleiri endursöluaðila. Þjónusta okkar til fyrirtækja felst í sölu á öllu hráefni sem þarf til kaffigerðar og kennslu varðandi þrif á kaffigerðarvélum auk þjálfunar og kennslu starfsmanna sem sjá um að laga kaffið. Mörg fyrirtæki kjósa að vera í áskrift á kaffi til að tryggja að hráefnið sé ávallt ferskt.
Sérþekking á hráefni og tækjum Starfsmenn okkar búa yfir sérþekkingu á þeim vélum og búnaði sem þarf til að laga gott kaffi auk þess að þekkja vel kaffihráefnið og framleiðsluferli þess. Við höfum þekkingu og reynslu af vélum sem við mælum sérstaklega með frá þekktum framleiðendum sbr. Fetco, Barista, Franke, LaMarzocco og VFA.
|