Um Kaffitár

Ástríða - Sérfræðiþekking – Alúð - Fjölmenning

Kaffitár hefur verið til síðan 1990, og síðan þá hefur fyrirtækið markað nokkur spor í sögu kaffiframleiðslu á Íslandi. Alveg frá upphafi hafa ástríða og fagmennska einkennt framgöngu þess, og hefur hvortveggja sest að í neytendum. Það er vissulega auðvelt að hengja utan á sig slíkum kostum, en þegar sælkera er ljóst að kaffið okkar er brennt með hjartanu og borið fram af þekkingu, þá er það líka sýnt að Kaffitár er til staðar til að veita hámarks ánægju.

Kaffið sjálft kemur þó ekki aðeins eitt þar við sögu, heldur einnig starfsfólkið. Kaffitár hefur í öll þessi ár lagt sig í líma við að þjálfa og fræða starfsfólk sitt þannig að hver og einn sé svo vel verki farinn að öruggt sé að bestu eiginleikar kaffisins komist til skila. Kaffibarþjónar okkar eru líka fyrir löngu orðnir þjóðkunnir fyrir færni sína, og hafa jafnt og þétt lagt „kaffiheiminn“ á borð fyrir neytandann.

Viltu koma einhverju á framfæri við Kaffitár?
Gjörðu svo vel, við tökum glöð við ábendingum og hugmyndum um fyrirtækið, kaffihúsin og vörurnar.  Sendu póst á kaffitar@kaffitar.is og við komum því áleiðis.

Kveðja,
Starfsfólk Kaffitárs

Afgreiðslutímar

Fróðleikur

Þjappa

Þjappan er í laginu einsog pattaralegt stundarglas. Þjappan er úr málmi og er notuð til að fergja kaffið ofan í greipina.

Lesa mola  |  Sjá fleiri mola

Við mælum með

Umhverfismál

Við látum verkin tala.
Sjá nánar