Efst á baugi

03.06.2010

Svansvottun Kaffitárs

Margir gesta okkar hafa ef til vill orðið var við ýmsar breytingar í þágu umhverfisins á kaffihúsum okkar nýverið. En undanfarna daga og vikur hefur staðið yfir undirbúningur vegna Svansvottunar á kaffihúsum okkar. Föstudaginn 14. maí munum við fá leyfi okkar og Svansvottun forlega veitt af umhverfisráðherra í Kaffitári Höfðatorgi kl 13. 
Svanurinn er norrænt umhverfismerki sem hjálpar neytendum að velja vörur og þjónustu sem er vistvænni en annað sambærilegt á markaðinum.  Notkun umhverfismerktra hreinsiefna, flokkun til endurvinnslu og markvissar aðgerðir til að minnka notkun einnota umbúða og sorp til urðunar er helstu þættir þess.  Við höfum hengt upp á öllum okkar kaffihúsum upplýsingar til gesta um hvað þetta hefur í för með sér. Helsta breytingin er að nú mælumst við til þess að einungis þeir sem taki drykkina með sér út af kaffihúsum okkar fái þá afgreidda í einnota pappamáli. Ef drekka á kaffið á kaffihúsinu verður drykkurinn að vera í leirtaui, þeas postulínsbolla eða glerglasi. Innleiðing á þessu fyrirkomulagi hefur staðið um nokkuð skeið og við þökkum öllum þeim sem hafa veitt okkur stuðning og skilning á viðfangsefninu sem með tímanum mun verða til þess að færri pappaglös frá verði urðuð.
 
Hvað þýðir það að kaffihúsin hafi hlotið Svansvottun?
Strangar kröfur Svansins tryggja að starfsemi og þjónusta átta kaffihúsa Kaffitárs og framleiðslueldhúss Kaffitárs eru í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa.

Kaffitár fagnar 20 ára afmæli í ár og hefur alla tíð verið umhugað um umhverfismál. Segja má að Kaffitár hafi verið um árabil í fararbroddi í umhverfismálum hér á landi og er vottun í dag staðfesting þess árangurs sem hefur náðst.

Það er samfélagsleg ábyrgð okkar að huga að umhverfismálum allt frá baun í bolla og er Svansvottunin liður í því að draga úr umhverfisáhrifum kaffihúsa okkar og þeirrar þjónustu sem við veitum þar. Sífellt fleiri velja umhverfisvottaða vöru og þjónustu og það eru forréttindi að vera eitt þeirra fyrirtækja sem vinna markvisst í að gera betur í umhverfismálum.

Um Kaffihúsin
Kaffitárskaffihúsin eru í dag átta og fá þau kökur og meðlæti daglega úr eigin framleiðslueldhúsi sem einnig hlýtur vottun.  Kröfur Svansins fyrir veitingastaði eru mjög strangar og þurfa kaffihúsin að vera með gott heildaryfirlit yfir umhverfisáhrif starfseminnar:

  • Lágmarka þarf notkun einnota bolla og notkun annarra einnota búnaðar eða einstaklingspakkaðra eininga sbr sérpakkað smjör og sultur í kaffihúsinu.
  • Lágmarka þarf efnanotkun auk þess sem flest öll hreinsiefni eru umhverfismerkt.
  • Hvatt er til lágmörkun orku- og vatnsnotkunar.
  • Lögð er áhersla á að velja sem mest af umhverfismerktar vörum og þjónustu í innkaupum.
  • Gerð er krafa um reglulega þjálfun og fræðslu starfsmanna ásamt ferlum til að stýra umhverfisstarfinu.
  • Flokkun úrgangs skal vera í minnst 4 flokka og tryggja að allur hættulegur úrgangur fái rétta meðhöndlun. Fylgst er með magni úrgangs og leiðum til að draga úr hlutfalli þess sorps sem þarf að urða.
  • Boðið er uppá lífrænt og umhverfisvottuð te og kaffibaunir.
  • Boðið er uppá grænmetisrétti á matseðli.
  • Innkaup á matvöru og hráefnum er frá nærliggjandi umhverfi og innlennt þar sem það á við til að draga úr flutningi aðfanga. Haldið er yfirlit yfir uppruna helstu hráefna.
  • Dreifing í kaffihús er háttað með tilliti til að lágmarka akstur og fjölda ferða.
  • Viðskiptavinir eru hvattir til að nota fjölnota ferðamál í stað pappamála þegar kaffi er tekið með út af kaffihúsunum.

En hvað þýðir þetta?
Með því að eiga viðskipti við Kaffitár, umhverfisvottuð Kaffihús,  getur viðskiptavinurinn gengið að þjónustan hefur verið skipulögð með umhverfisáhrif í huga og fundnar leiðir til að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar.  Þannig er ströngum gæðakröfum er fylgt eftir við afgreiðslu svo og framreiðsluna í kaffihúsum. Í vöruúrvali er ávallt umhverfisvottað kaffi og te.

Svansmerkt er hagkvæmt
Það er gert ráð fyrir að það náist  töluverð hagkvæmni bæði í framreiðslunni  og þjónustunni í kaffihúsum og í matargerð og bakstri í eldhúsinu t.d. með minni hráefnis- og orkunotkun eða minni úrgangskostnaði. Þetta leiðir af sér hagkvæmara verð til viðskiptavinar.

Ef reiknað er með umhverfiskostnaði í beinhörðum peningum, er umhverfisvottuð vara vafalaust ódýrari fyrir samfélagið vegna minni mengunar og annarar óæskilegra umhverfis- og heilsuáhrifa.

Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir okkar viðskiptavini?

Öll þjónusta kaffihúsana er umhverfisvottuð og má því merkja kaffihúsin með Svansmerkinu þar sem þau uppfylla kröfur fyrir veitingahús. Svansvottun ferlur í sér ströngustu umhverfis og gæðaskilyrði og gefa viðskiptavinum fullvissu um að sú þjónsta sem veitt er í kaffihúsum er góður valkostur fyrir umhverfið frá baun í bolla.

Norræna umhverfismerkið Svanurinn
Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og viðmiðum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo að komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Alls er hægt að votta 65 mismunandi vöru- og þjónustuflokka

Afgreiðslutímar

Fróðleikur

Hvaða kaffibrennslur?

Kaffitár brennir kaffi yfirleitt á þrjá til fjóra mismunandi vegu. Þessar brennslur nefnast: meðal-, kúbönsk-, Vínar- og frönsk

Lesa mola  |  Sjá fleiri mola

Við mælum með

Umhverfismál

Við látum verkin tala.
Sjá nánar